Þetta er fyrir þig ef þig langar að:
- Fá skoðun á kvið eftir meðgöngu
- Vera örugg með hvaða kviðæfingar er í lagi að gera
- Fara skynsamlega af stað með kviðæfingar og erfiðleikastig í takt við stöðuna á þínum kvið
- Læra inn á þinn líkama og að hlusta á hann
- Vera sterk
Aðgangur að fjarprógramminu kemur svo í beinu framhaldi af skoðuninni, prógrammið er 6 vikur en er opið yfir lengri tíma.
Æfingar sem eiga ekki að taka langan tíma (um það bil 15 mín) og hægt að gera samhliða annarri hreyfingu og í rauninni gott að yfirfæra yfir á aðra hreyfingu líka.
Þrjár æfingar á viku í fjar sem taka um það bil 15 mín en að sjálfsögðu hægt að gera þær oftar.
Innifalið er:
- Skoðunartími á staðum eða í fjar. Fundin er tímasetning fyrir skoðunartímann í sameiningu.
- 6 vikna fjarprógramm og er opið yfir lengri tíma.
- Eftirfylgni og stuðningur.
Staðsetning skoðunartíma: Vivus þjálfun, Langholtsvegur 111.
Einnig er hægt að fá skoðunartímann í fjar ef það hentar betur.
Sara Lind og Valgerður sjúkraþjálfarar og þjálfarar sjá um skoðanirnar og prógrammið.