
Hlaupaprógram fyrir mömmur, bæði fyrir þær sem eru að stíga sín fyrstu skef í hlaupum eða vilja fara rólega og skynsamlega af stað í hlaupum eftir meðgöngu.
Námskeiðið hefst á næstkomandi mánudag og er fjarþjálfun.
3x hlaupaæfingar í viku ásamt 2x styrktarþjálfun með áherslu á æfingar til að fyrirbyggja meiðsli í hlaupum og fyrir aukinn árangur. Styrktarþjálfunar æfingarnar eru stuttar og því einnig hægt að taka þær á hlaupadögunum ef það hentar betur.
Valið um 6 eða 12 vikur. Mælum með 12 vikum fyrir sem bestan árangur en ef aðallega er þörf á prógrammi til að koma sér af stað að þá henta 6 vikur líka vel.
Aðgangur að appi með myndböndum af öllum æfingum og góðu aðhaldi.
Hlaup eftir líðan ekki tíma eða hraða og markmiðið að "safna kílómetrum" í fæturnar. Ná upp grunnþoli og hafa gaman af því að hlaupa. Markmiðið er að ná að hlaupa 5 km og líða vel í þeim eftir 12 vikur.