Konur 60+ - FULLT

Konur 60+ - FULLT

Venjulegt verð
16.900 kr
Útsöluverð
16.900 kr
Venjulegt verð
Uppselt
Vöruverð
stk. 
Skattar innifaldnir.

Markmiðið með tímunum er að stunda skemmtilegar æfingar í góðum hópi þar sem áhersla er lögð á styrktarþjálfun og allar æfa á sínum forsendum. 

Þetta er fyrir þig ef þú tengir við eitthvað af eftirfarandi:

- langar að finna gleðina í hreyfingu og æfa á þínum forsendum.

- langar að æfa í góðum hópi kvenna tvisvar í viku.

- langar að styrkja þig og auka þol.

- hefur átt erfitt með að finna þig í hreyfingu síðustu ár.

- hefur verið að glíma við álagseinkenni eða meiðsli.

Næsta námskeið hefst á mánudaginn 9.janúar. Hámark 15 pláss í boði og því um að gera að næla sér í pláss sem fyrst. 4 vikna tímabil.

Tímasetning: Mánudagar og miðvikudagar kl.13:00-13:45.

Verð: 16.900 fyrir stakt námskeið eða hægt er að koma með beiðni frá Sjúkratryggingum Íslands og borga í takt við það.

Ef þú vilt koma á beiðni þá geturu sent okkur á vivus@vivus.is fyrir skráningu.

Frí á rauðum dögum.

Staðsetning: Vivus þjálfun, Langholtsvegur 111.

Sjúkraþjálfarar og þjálfarar kenna tímana.

Þjálfarar eru Sara Lind og Valgerður