Klippikort – Vivus – Vinkonur – ákveðnar tímasetningar
30.000 kr.
10 skipta klippikort á ákveðnum tímasetningum og engin gildistími á kortinu, það gildir eins lengi og ofantaldar tímasetningar eru í boði. Talning á skiptunum fer svo í ykkar hendur, teljið bara sjálfar upp í 10 skipti <3
Tímasetningar sem eru í boði:
Fimmtudagar kl.7:10, föstudagar kl.12:15 og laugardagar kl.8.
Allir tímar eru 45 mínútur.
Markmiðið með tímunum er að stunda skemmtilegar æfingar í góðum hópi þar sem allar æfa á sínum forsendum. Gleði, sviti og góður félagsskapur er aðalmarkmiðið. Einnig verður tekið spjall um grindarbotn, kviðbil, meiðsli eða allt það sem brennur á iðkendum og það sem spjallað er um í saumaklúbbum. Tilvalið að plata einhverja vinkonu með sér eða koma ein, hvort sem heldur munum við taka vel á móti þér.
Frí á rauðum dögum.
Staðsetning: Vivus þjálfun, Langholtsvegur 111.
Sjúkraþjálfarar og þjálfarar kenna tímana.
Þjálfarar eru Sara Lind, Steinþóra, Birna Hrund og Nína.

