Um Vivus.is

Vivus ehf.
Kt: 690921-0140
Langholtsvegur 111 – 104 Reykjavík
vivus@vivus.is

EFTIRFARANDI SKILMÁLAR GILDA UM HEIMSÓKN ÞÍNA Á VEFSÍÐUNA OG ÖLL VIÐSKIPTI SEM ÞÚ KANNT AÐ GERA Á VEFSÍÐUNNI, NÚ EÐA SÍÐAR.

Réttur til að hætta við pantanir

Vivus ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Efni á heimasíðu og námskeiðum / höfundaréttur

Allt efni á heimasíðu Vivus ehf. og allt efni á netnámskeiðum sem seljandi bíður upp á er í eigu seljanda. Kaupanda er óheimilt að afrita efnið eða að deila því áfram.

Einstaklingsaðgangur

Óheimilt er að deila vörum eða áskrift með öðrum sem hefur ekki greitt fyrir aðgang að tiltekinni vöru eða þjónustu. Hver og einn kaupir aðgang fyrir sig.

Greiðsluskylda kaupanda (iðkanda) sem skráir sig í áskrift

Kaupandi sem skráir sig í áskrift hjá Vivus ehf. skuldbindur sig til að greiða samkvæmt skilmálum sem komu fram á skráningarsíðu við skráningu. Kaupandi þarf sjálfur að segja upp áskrift ef hann vill ekki lengur hafa aðgang að vörunni eða þjónustunni sem hann keypti. Skoða skal uppsagnarfresti og eru þeir ólíkir eftir þjónustu.

Alltaf er greitt fyrirfram fyrir þjálfun.

Uppsögn á áskrift

Kaupandi getur sagt upp áskrift að vöru eða þjónustu með því að senda tölvupóst á vivus@vivus.is.
Vinsamlegast athugið að uppsagnarfrestir eru ólíkir eftir þjónustu. En grunn uppsagnarfrestur í hópþjálfun hjá Vivus er 1 mánuður og er ein greiðsla tekin eftir að uppsögn á sér stað.

Ef um eingreiðslu fyrir námskeið var að ræða (ekki áskrift) er ekki mögulegt að segja upp.

Verð

Vinsamlegast athugið að verð geta breyst án fyrirvara. Ef áskriftargjald (mánaðarlegar áskriftir) hækkar mun Vivus ehf. senda tilkynningu þar um með eins mánaðar fyrirvara.

Eigin ábyrgð

Athugaðu að kaupandi ber ábyrgð á framkvæmd og niðurstöðu af vörum eða þjónustu frá Vivus ehf. Kaupandi ber ábyrgð á eigin heilsu og verður að treysta sér til að framkvæma æfingar eða til að nýta aðra þjónustu sem hann fær hjá Vivus ehf. Við hvetjum kaupanda til að hlusta á eigin líkama og verður ávallt að huga að eigin getu þegar tekin er ákvörðun um að kaupa og nýta sér þjónustu hjá Vivus ehf.

Ef iðkandi tekur barn/börn sín með á æfingu eða í æfingasal ber hann ábyrgð á öryggi barnsins.
Með kaupum á vöru eða þjónustu hjá Vivus ehf. staðfestir kaupandi að hann beri þessa ábyrgð (eigin áhættu).

Endurgreiðsla

Ekki er veitt endurgreiðsla vegna hluta af námskeiði eða vegna ónýtts aðgangs.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Vivus ehf. á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

Breytingar

Vivus ehf. áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum sínum. Breytingarnar taka gildi þegar uppfærðir skilmálar hafa verið birtir hér á heimasíðunni.