Sjúkraþjálfun Vivus ehf., kt. 690921-0140, (hér eftir „Vivus“) er umhugað um persónuvernd og leggjum við ríka áherslu á að tryggja öryggi og lögmæta notkun þeirra persónuupplýsinga sem við meðhöndlum í okkar starfsemi. Persónuvernd er mikilvæg í allri starfssemi Vivus. Nauðsynlegt er að skrá og vinna ýmsar persónu- og heilsufarsupplýsingar til að geta veitt sem besta þjónustu og sinnt þeim verkefnum sem Vivus eru falin.
Í persónuverndarskilmálum þessum er greint frá því hvernig Vivus stendur að vinnslu persónuupplýsinga. Með vinnslu er s.s. átt við söfnun, skráningu, vistun og miðlun persónugreinanlegra upplýsinga um einstaklinga, viðskiptavini og starfsmenn Vivus.
Hér er yfirlit um það hvernig við virðum réttindi einstaklinga í tengslum við alla söfnun og vinnslu persónuupplýsinga í starfsemi okkar.
Við meðhöndlum einungis persónuupplýsingar í fyrir fram ákveðnum tilgangi og á grundvelli viðhlítandi heimildar. Við meðhöndlum aðallega persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir veitingu þjónustu sem óskað hefur verið eftir.
Við grípum til viðeigandi öryggisráðstafana til þess að varðveita persónuupplýsingar og vernda þær gegn óviðkomandi aðilum.
Við deilum ekki persónuupplýsingum með öðrum aðilum nema nauðsyn krefji og að fyrir liggi viðhlítandi heimild skv. lögum eða samningi. Við munum aldrei selja persónuupplýsingar til þriðja aðila.
Við varðveitum ekki persónuupplýsingar lengur en þörf krefur eða sem gildandi lög á hverjum tíma áskilja.
Fyrirspurnum varðandi persónuverndarskilmála þessa eða notkun okkar á persónuupplýsingum þínum má beina á netfangið vivus@vivus.is eða með bréfpósti til: Sjúkraþjálfun Vivus ehf., Langholtsvegur 111, 104 Reykjavík.
1. Hvaða persónuupplýsingar skráir Vivus?
Við söfnum sjálf eða fáum afhentar persónuupplýsingar um þig þegar við veitum þér eða viðskiptavinum okkar þjónustu eða þegar við könnum áreiðanleika upplýsinga og gagna í tengslum við þjónustuna. Um getur verið að ræða persónuupplýsingar sem þú lætur okkur í té vegna þjónustu okkar til þín, frá þriðja aðila eins og vinnuveitanda sem við veitum þjónustu eða upplýsingar sem hafa verið gerðar opinberar. Einnig kunnum við að vinna með persónuupplýsingar um starfsfólk okkar.
Þær persónuupplýsingar sem við kunnum að afla um þig í tengslum við þjónustu okkar eða sem starfsmann okkar geta einkum falist í eftirfarandi:
- nafn, kennitala og kyn;
- lögheimili, netfang, símanúmer og álíka tengiliðaupplýsingar;
- heilsufarsupplýsingar.
Í sumum tilvikum kunnum við að meðhöndla viðkvæmar persónuupplýsingar um þig vegna þjónustu okkar líkt og heilsufarsupplýsingar.
Í öllum tilvikum er okkur umhugað um að meðhöndla og varðveita eingöngu þær persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar til að veita viðskiptavinum umbeðna þjónustu hverju sinni eða til uppfylla áskilnað laga.
2. Hvernig vinnum við persónuupplýsingar þínar?
Við notum persónuupplýsingar þínar í eftirfarandi tilgangi:
Þjónusta
Við veitum einstaklingum þjónustu á sviði endurhæfingar og þjálfunar. Meðhöndlun persónuupplýsinga er oftast óumflýjanleg til að gera okkur kleift að veita umbeðna þjónustu.
Daglegur rekstur og áskilnaður laga
Við kunnum að meðhöndla og varðveita persónuupplýsingar þínar í daglegri starfsemi okkar, svo sem vegna innra bókhalds og reikningagerðar, launagreiðslna starfsfólks o.s.frv. Einnig gætum við meðhöndlað persónuupplýsingar þínar til að fá álit þitt á þjónustu okkar eða í markaðsskyni.
Heilsufarsupplýsingar eru meðhöndlaðar og varðveittar hjá Gagna, sem er hugbúnaður félags sjúkraþjálfara sem heldur utan um tímabókunarkerfi og reikningakerfi með samtengingu við SÍ, sjúkraskráningakerfi.
Þá áskilja ýmis lög og reglugerðir, eins og bókhaldslög, að við söfnum og varðveitum nánar tilgreindar upplýsingar um viðskiptavini okkar í ákveðinn tíma og geta slíkar upplýsingar innihaldið persónuupplýsingar um þig. Sömuleiðis kunnum við að vinna persónuupplýsingar vegna beiðna eða fyrirmæla stjórnvalda þar um.
Óskir þú eftir afriti af persónuupplýsingum þínum eða eyðingu þeirra kallar slíkt jafnframt á meðhöndlun okkar á viðkomandi upplýsingum.
Lagalegar kröfur og ágreiningsmál
Við gætum meðhöndlað persónuupplýsingar til að standa vörð um lagalega hagsmuni okkar sem fyrirtækis eða vegna starfsmanna okkar.
3. Á hvaða grundvelli vinnum við persónuupplýsingarnar þínar?
Við meðhöndlum einungis persónuupplýsingar ef lögmætur grundvöllur fyrir vinnslunni er fyrir hendi og að vinnslan sé nauðsynleg. Vinnsla okkar á persónuupplýsingum þínum byggir á einni eða fleiri eftirfarandi heimildum:
- Vinnsla nauðsynleg vegna framkvæmdar samnings
Við kunnum að meðhöndla persónuupplýsingar þínar til að geta veitt þér umbeðna þjónustu samkvæmt samningi eða til að gera ráðstafanir áður en gengið er til samninga. - Vinnsla byggir á umboði frá þér
Við kunnum að meðhöndla persónuupplýsingar á grundvelli umboðs sem þú hefur veitt okkur í fyrirfram ákveðnum tilgangi. Þetta á einkum við þegar um viðkvæmar persónuupplýsingar er að ræða, s.s. heilsufarsupplýsingar. - Vinnsla nauðsynleg til að uppfylla lagaskyldu
Við erum lagalega skyld til að færa upplýsingar í sjúkraskrá skv. lögum nr. 55/2009. Upplýsingum í sjúkraskrá er óheimilt að eyða. - Vinnsla byggir á lögmætum hagsmunum okkar
Við kunnum að vinna persónuupplýsingar til að verja viðskiptalega hagsmuni okkar og bæta þjónustu okkar.
4. Fáum við persónuupplýsingar um þig frá þriðja aðila?
Já, t.d. frá læknum eða öðrum sjúkraþjálfurum. Slíkar upplýsingar meðhöndlum við á sama örugga hátt og aðrar.
5. Deilum við persónuupplýsingum þínum með öðrum?
Um persónuupplýsingar sem við meðhöndlum ríkir fullkominn trúnaður. Starfsfólk okkar er bundið þagnarskyldu.
Við seljum aldrei persónuupplýsingar til þriðja aðila. Hins vegar gætum við deilt upplýsingum með:
- ráðgjöfum og þjónustuaðilum (s.s. endurskoðendum, hugbúnaðarfyrirtækjum),
- stjórnvöldum,
- öðrum heilbrigðisstarfsmönnum að beiðni þinni,
- aðilum sem þú hefur veitt umboð.
6. Hversu lengi varðveitum við persónuupplýsingar þínar?
Við varðveitum ekki lengur en nauðsyn krefur eða sem lög áskilja. Heilsufarsupplýsingar eru varðveittar í Gagna samkvæmt ströngum reglum.
7. Hvernig tryggjum við öryggi persónuupplýsinga þinna?
Við notum tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir, s.s. aðgangsstýringar að tölvum, fræðslu til starfsmanna, viðbragðsferla við öryggisbrestum og samninga við vinnsluaðila.
8. Hver er réttur þinn vegna notkunar okkar á persónuupplýsingum þínum?
Þú átt rétt á að:
- fá aðgang að eigin gögnum,
- krefjast leiðréttingar eða eyðingar,
- takmarka vinnslu,
- fá gögn afhent.
Þú getur afturkallað samþykki hvenær sem er, en það getur haft áhrif á möguleika okkar til að veita þjónustu.
Ef skyldur okkar samkvæmt lögum (t.d. sjúkraskrá) standa í vegi fyrir eyðingu gagna, verður því að hlíta.
Beiðnir verða afgreiddar innan 30 daga og við gætum óskað eftir framvísun skilríkja.
Kvörtun er hægt að senda til:
Persónuvernd
Rauðarárstígur 10
105 Reykjavík
Ísland
Síðast yfirfarið og uppfært: 27. ágúst 2025