Grunnnámskeið Vivus (Konur)

29.900 kr.

8 vikna fjarþjálfunarúrræði fyrir konur sem eru með stoðkerfiseinkenni i tengslum við eitthvað af eftirfarandi:

  • álag/streitu
  • eftir meðgöngu/fæðingar
  • hormónabreytingar (breytingaskeið).
  • Hægt að byrja prógrammið á mánudögum.

Fjarúrræði fyrir konur sem vilja hreyfa sig og styrkja en eru að upplifa streitutengd stoðkerfiseinkenni (til dæmis verkir, stífleiki, stirðleiki, óþægindi, hamlandi þreyta…). Einstaklingur fær aðstoð við að finna leiðir til að stunda hreyfingu með tilliti til þessara einkenna.

Innifalið er:

  • Fræðslumyndbönd
  • Liðkanir
  • Öndunaræfingar
  • Styrktar- og úthalds æfingar
  • Allt ofantalið með það markmið að auka vellíðan, draga úr streitu og komast af stað í hreyfingu þrátt fyrir stoðkerfiseinkenni.

Stuðningur og eftirfylgni fer öll fram í appi (Truecoach).

Áhersla verður lögð á að viðkomandi fái þá hjálp sem þarf til að aðlaga æfingar í takt við líðan og velja viðeigandi bjargráð út frá því. Hvort sem það eru verkfæri til að róa taugakerfið, draga úr verkjum eða ráðleggingar varðandi ákefð í æfingum og allt þar á milli. Aðalmarkmiðið með prógramminu er að gera hreyfingu að sjálfsögðum parti af lífinu sem hefur jákvæð áhrif út ævina.

Finna leiðir til að nota hreyfingu til draga úr einkennum streitu og verkja auk þess að auka virkni í daglegu lífi, bæta sjálfsþekkingu og sýna sér mildi þegar þess þarf.

Æfingarnar eru allar leiddar og það eina sem þarf að gera er að smella á play og fylgja <3

Í hverri viku er:

Ein styrktaræfing (leidd)
Ein liðkandi æfing (leidd)
Ein útivera/ganga/þrektæki
Sara Lind Brynjólfsdóttir sjúkraþjálfari og lýðheilsufræðingur sér um þjálfunina.