Sterkara og hreyfanlegra bak

kr.

Þetta námskeið er fyrir þig ef þig langar að:

Draga úr verkjum/óþægindum frá mjóbaki
Fá æfingar í takt við þína bakverki
Vera hreyfanleg/-ur og sterk/-ur
Fá skoðun* á bakinu þínu og einkennum
Halda áfram að gera og æfa það sem þér finnst skemmtilegt
Námskeiðið er 12 vikur og eru tímarnir á þriðjudögum milli 10:30-11:30

Hámark 12 einstaklingar á námskeiðinu.

Hóptími 1x í viku með sjúkraþjálfara þar sem unnið er að því að draga úr einkennum frá mjóbakinu. Æfingar, teygjur, losanir með boltum og almenn fræðsla varðandi bakið.
8 vikna fjarprógramm sem inniheldur æfingar og fræðslu í kjölfarið á skoðun og er aðgengilegt í 12 vikur
Fjar – Prógrammið samanstendur af 3 æfingum á viku sem taka um það bil 15 mínútur ásamt fræðslu um hvernig hægt er að aðlaga æfingar í takt við einkenni til að vinna smátt og smátt að því að geta stundað þá hreyfingu sem þú vilt án þess að finna fyrir verkjum/óþægindum á meðan eða í kjölfarið.

Kostnaður námskeiðsins fer eftir gjaldskrá sjúkratrygginga um hóptímagjald.

*Athugið að skoðunartíminn er val hvers og eins og greiddur sér og kostnaðurinn bætist við þetta verð, fer eftir stöðu hvers og eins hjá Sjúkratryggingum Íslands.

Staðsetning skoðunartíma: Vivus þjálfun, Langholtsvegur 111.

Daði sjúkraþjálfari sér um skoðanirnar, hóptímana og fjarprógrammið.