Hlaupaþjálfun fyrir byrjendur - Fjarþjálfun

Hlaupaþjálfun fyrir byrjendur - Fjarþjálfun

Venjulegt verð
12.990 kr
Útsöluverð
12.990 kr
Venjulegt verð
Uppselt
Vöruverð
stk. 
Skattar innifaldnir.

Hægt að velja um stakt námskeið eða áskrift

Skráning í áskrift hér - 12.900 kr á mánuði

Hlaupaprógram fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skef í hlaupum eða eru að jafna sig eftir meiðsli og vilja byrja rólega. 

Næsta námskeið hefst næstkomandi mánudag.

Hægt er að velja um stakt námskeið eða áskrift.
Stakt námskeið, þá rennur aðgangurinn út þegar tímabil klárast. Ein aukavika innifalin. 
Áskrift, þá greiðir þú mánaðarlega og getur tekið prógrammið á þínum hraða. Þú segir upp þegar þú hefur lokið við prógrammið eða vilt hætta, enginn uppsagnarfrestur. 

3x hlaupaæfingar í viku ásamt 2x styrktarþjálfun með áherslu á æfingar til að fyrirbyggja meiðsli í hlaupum og fyrir aukinn árangur. Styrktarþjálfunaræfingarnar eru stuttar og því einnig hægt að taka þær á hlaupadögunum ef það hentar betur.

Valið er um 6 eða 12 vikur. Mælum með 12 vikum fyrir sem bestan árangur en ef aðallega er þörf á prógrammi til að koma sér af stað henta 6 vikur líka vel. 

Aðgangur að appi með myndböndum af öllum æfingum. Ef valið er með eftirfylgd er aðhald frá sjúkraþjálfara auk þess sem hægt er að fá aðstoð varðandi æfingarnar, meiðsli og annað.  

Hlaup eftir líðan,ekki tíma eða hraða, og markmiðið að "safna kílómetrum" í fæturnar. Ná upp grunnþoli og hafa gaman af því að hlaupa.

Sérhæfðar styrktaræfingar til að fyrirbyggja meiðsli.

Markmið að komast 5 km og líða vel á hlaupunum.